Forsíða
Um Einar Farestveit
Starfsmenn
Skoða eftir merki
Leiðarvísar
Bæklingar
English
 
Eldhúsið
Þvottahúsið
KitchenAid
Eldhúsáhöld
Smáraftæki
Ryksugupokar
Kaffivélar
Kaffi og te
Upphitun
Loftræsting
Öryggi
Lækningatæki
Tannlæknabúnaður
Þjónustuverkstæði

Um fyrirtækið

Einar Farestveit & Co.hf. var stofnað 1.apríl 1964 af Einari Farestveit og fjölskyldu hans.

Einar Farestveit fæddist í Modalen í Horðalandsfylki í Noregi 1911 og ólst þar upp. Hann nam við K. Nerheims Handelsskole og lærði auk þess loðdýrarækt. Árið 1933 flutti hann til Íslands. Einar varð framkvæmdarstjóri hjá Loðdýraræktarfélagi Íslands 1939.

Árið 1941 réðst hann sem framkvæmdarstjóri til inn- og útflutningsfyrirtækisins G. Helgason & Melsted hf. og tók þá jafnframt við stöðu framkvæmdarstjóra Pan American flugfélagsins, síðar PanAm, á Íslandi.

Árið 1941 stofnaði Einar verslunarfélagið Blöndu og árið 1964 stofnaði hann ásamt fjölskyldu sinni fyrirtækið Einar Farestveit & Co.hf. Einar sat í stjórn fjölmargra fyrirtækja eins og Félags Íslenskra stórkaupmanna, Tollvörugeymslunnar hf. og fleiri. Einar vann mikið að samskiptum Norðmanna og Íslendinga og fyrir það var honum veitt St. Olavsorðan af 1. gráðu af Ólavi Noregskonungi.

Einar Farestveit & Co.hf. hóf starfsemi sína með innflutningu og þjónustu á báta- og skipavélum og ýmsum búnaði tengdum sjávarútvegi ásamt sjónvarps-, hljómflutnings- og heimilistækjum. Fyrirtækið var um langt árabil leiðandi í sölu og þjónustu á stærri dieselvélum fyrir skip og togara.

Á miðjum níunda áratugnum sneri fyrirtækið sér alfarið frá þjónustu við sjávarútveginn og tók að leggja megin áherslu á innflutning og sölu á rafeindatækjum, lækningatækjum, hitatækjum fyrir heimili og iðnað ásamt heimilis- og sjónvarpstækjum.

Í dag starfar fyrirtækið á 4 sviðum:

- Heimilistækjasvið
- Fyrirtækjasvið
- Öryggissvið
- Lækninga- og virkjanasvið


Fyrirtækið hefur skapað sér nafn á Íslandi með sölu á vörum sem það hefur umboð fyrir. Fyrtækið náði 32% markaðshlutdeild í sölu á örbylgjuofnum þegar þeir komu á markaðinn og rak fyrirtækið þá sérstkan matreiðsluskóla. Fyrirtækið er með stóra markaðshlutdeild á sumum sviðum lækningatækja og er í dag eitt aðf leiðandi fyrtækjum á sviði örgyggismyndavélakerfa, sjónvarptækja og DVD. Fyrirtækið hefur einskorðað sig við vandaðar vörur í háum gæðaflokkum og vinnur stöðugt að því að efla þjónustuna við viðskiptavini sína.



Skilmálar EF.is:

Skilmála þessa samþykkir þú við að opna EF.is:
a. Allar upplýsingar eru til viðmiðunar og ber ekki að túlka sem endanlegt tilboð.
b. Engin ábyrgð er tekin á verði, upplýsingum, myndum eða neinu öðru efni sem birtist á vefnum.
c. Einar Farestveit & Co.hf. áskilur sér rétt til að breyta verði án fyrirvara.


Um verðupplýsingar á EF.is:

Öll verð á vefnum eru gefin upp með virðisaukaskatti. Mismunandi getur verið hvort upp sé gefið staðgreiðsluverð eða afborgunarverð. Leitið upplýsinga endanlegt verð hjá sölumönnum eða í gegnum vefpóst.